|
Brianslag - Goon - Panic
Den her sang var den første af mange som Brian lærte mig at kende. Det var kort efter jeg startede mit arbejde i Magasin. Brian lyttede hele tiden til gode sange og jeg var jo nød til at lytte også fordi jeg var lige mod ham, men det var helt ok fordi med tiden blev han en af min bedste ven. Savner min Wormy.
Valbergslag - Petshop Boys - Being Boring
Þetta lag minnti Valberg alltaf á þá tíma þegar við vorum í Menntaskóla. Textinn á mjög vel við okkur "We were never being boring". Hugsa alltaf til Valbergs og þessa tíma þegar ég heyri þetta lag.
Mettelag - Lemmon Jelly - In The Bath
Mette á sko þetta lag. Þegar ég bjó á kollegiinu þá spilaði hún þetta lag alltaf þegar hún kom í heimsókn. Svo þegar hún svaf nokkru sinnum ein þar þá spilaði hún þetta lag í repeat á meðan hún svaf og fyrir vikið var þetta LANG mest spilaða lagið í tölvunni hjá mér.
Zhavehlag - Khia - My Neck, My Back
Já nú er komið að elskunni minni henni Zhaveh. Já þetta lag er nú ekki það lag sem við köllum okkar lag og heldur ekki lag sem hún hlustar mikið á, en þegar við vorum að kynnast þá leyfði hún mér að heyra það og síðan þá, þá hugsa ég alltaf um hana þegar ég heyri það.
Það getur því engin annar átt þetta snilldarlag (eða snilldartexta :) )
Gautalag - B52 - Rock Lobster
Þetta lag er nú bara Gauti. Hann hefur sjálfur eiginlega eignað sér það með því að nota það í hinum og þessum leikjum á netinu.
Lagið sjálft er líka svona hresst en samt undarlegt og passar alveg ótrúlega vel við Gauta
Önnulag - Fattaru - Mina Hundar
Þetta lag er frá Danmerkurtímanum góða. Af einhverjum ástæðum þá tókst Önnu að gera þetta að sínu lagi í mínum huga Hún bað mig svo oft um að spila það þegar hún kom í partý og ekki sagði ég nei við því.
Auðvitað er lagið "Take On Me" lagið okkar Önnu en þessi listi á frekar að segja frá lögum sem fær mig hvað mest til að hugsa um ákveðnar manneskjur og ákveðin móment.
Gaujalag - Bryan Adams - Summer of '69
Gaui hatar þetta lag eftir að nágranni hans spilaði það stanslaust í heilan dag. Svo spilaði ég þetta sæmilega mikið þegar ég var í raun að byrja að umgangast Gauja og hann var síkvartandi yfir þessu lagi :) |